Fréttablaðið slær upp stórskandal á forsíðunni. Á Reykjavík er einn heimilislæknir fyrir hverja sautjánhundruð.
Sjálfur hef ég hitt heimilislækninn minn þrisvar á síðustu tveimur áratugum. Einu sinni til að láta brenna af mér vörtu. Hin tvö skiptin reyndust vera rugl í mér, þar sem ekkert var hægt að gera.
Enda hefur Svanur læknir líklega hárrétt fyrir sér þegar hann segir að það sé eiginlega bara tvennt sem geti amað að fólki: hystería eða flensa. Og hvorugt geti læknavísindin ráðið við…