Pólitísk óþverrabrögð fyrir byrjendur – 1.lexía

Ef maður ætlar að grafa undan undirskriftarsöfnun á netinu – þá er EKKI besta leiðin að skrá inn Mikka mús og Viggó viðutan.

Mun vænlegra er að skrá sjálfan sig (úr öruggri tölvu) og fara svo foxillur og sár í blaðaviðtal yfir að hafa verið skráður óafvitandi af vondum mönnum. Virkar miklu betur.

Þetta hélt ég að væri kennt í PR-103.