Ég get ekki alveg gert upp við mig hvort Halldór Ásgrímsson sé siðblindur eða heimskur, miðað við viðtalið á Rás 2 í morgun.
Það var erfitt að skilja hann öðruvísi en að stuðningurinn við innrásina í Írak hafi verið sjálfsagður og eðlilegur á sínum tíma, enda Bandaríkjamenn og Bretar þá miklir vinir okkar og til mikils að vinna að halda þeim góðum. Í dag myndi hann hins vegar ekki skrifa upp á svona innrás – enda hefðu Bandaríkjamenn lokað herstöðinni í Keflavík og Bretarnir píni okkur til að borga okurvexti.
Með öðrum orðum: ef Kaninn væri enn að lufsast hér með 4-6 herþotur væri fyrrum formaður Framsóknarflokksins meira en til í að klappa fyrir næsta árásarstríði þeirra. Spurningin er bara hvað Icesave-vextirnir þyrftu að vera lágir til að HÁ veitti breskum stjórnvöldum syndaaflausn til að sprengja í loft upp fátækt fólk í fjarlægum löndum.
Eru engin takmörk fyrir lágkúru þessa manns?