Internetið er gleðispillir 21. aldarinnar.
Herra Google er búinn að eyðileggja ótal spurningaleiki. Spurningahöfundar geta hnoðað saman skemmtilegum spurningum, sem reyna eiga á minni fólks eða tengigáfu – en einföld gúgglun eyðileggur langflestar þessara þrauta á örfáum sekúndum.
Sú var líka tíðin að menn gátu slengt fram líflegum og skemmtilegum sögum eða staðhæfingum, þar sem frásagnargleðin fékk að njóta sín laus undan oki staðreyndanna – núna er hægðarleikur að skjóta slíkar frásagnir í kaf.
Á dögunum var Bob Geldof hankaður á frásögn sinni af ítalskri eyju, sem átti að vera að drukkna í líkum skipbrota Afríkubúa. Afhjúpunin var pínleg, þó ég eigi bágt með að skilja hvaða pólitíska sigur Björn Bjarnason taldi sig vinna með því að rifja hana upp í grein.
En nú hefur félagi Geldof aftur stigið í spínatið. Nú hafa leiðindagaurar á netinu hankað hann á sögunni af Birhan litlu, stelpunni sem varð táknmynd Band Aid á sínum tíma. Smátt? Jú vissulega – en rétt skal vera rétt…
# # # # # # # # # # # # # #
Leiðin liggur til Eyja á sunnudag, þar sem Fram keppir við íBV.
Sá mörkin úr leik KR og Skagans í fréttunum. Ætli mörg mörk hafi verið skoruð af viðlíka löngu færi í íslenska boltanum og seinna mark íA?