Fötlun okkar Guðna

Við Guðni ígústsson eigum við sömu fötlun að strí­ða. DV veltir sér upp úr þessum takmörkunum Guðna á baksí­ðu í­ gær með stækkaðri ljósmynd. Kannski má ég eiga von á sömu meðhöndlun í­ framtí­ðinni ef ég álpast í­ að taka þátt í­ opinberri undirritun samninga.

VIð Guðni kunnum sem sagt hvorugur að halda almennilega á penna. Þess í­ stað látum við pennann (eða blýantinn) hví­la milli ví­sifingurs og löngutangar og styðjum með þumalfingri við oddinn.

Þetta skringilega skriftarlag vandi ég mig á um leið og ég lærði að draga til stafs. Allir kennararnir mí­nir í­ barnaskóla pönkuðust á mér fyrir þetta og reyndar voru ýmsar brellur í­ þessu skyni. Þegar komið var upp í­ tólf ára bekk gafst skólakerfið upp. Þá tók Óli lögga (sem hét svo vegna þess að hann starfaði sem lögregluþjónn á sumrin) við bekkjarkennslunni hjá okkur í­ C-bekknum. Hann var fyrsti kennarinn minn sem ekki amaðist við því­ hvernig ég hélt á penna. Fyrir það var ég honum alltaf þakklátur og kunni vel að meta hann frá fyrsta degi.

Á gaggó kom einn kennarinn minn – Kara, eiginkona Alfreðs Gí­slasonar handboltakappa – til mí­n og sagði að skriftin mí­n væri ólæsilegt krot, sem lí­klega skýrðist af því­ að ég héldi á blýanti eins og fimm ára krakki. Hún spurði mig hvað ég hefði hugsað mér að gera í­ málinu? Eftir nokkrar samningaviðræður komumst við að þeirri niðurstöðu að það væri of seint að kenna gömlum hundi að sitja. Ég myndi ekki læra að halda á penna úr þessu, en til að hægt væri að rýna í­ párið mitt myndi ég hætta að skrfa skrifstafi (helví­tis í­tölsku skriftina sem mí­n kynslóð lærði). Þess í­ stað kom ég mér upp færni í­ að skrifa mjög hratt með prentstöfum. Það hefur þann eina ókost að ég get orðið afskaplega þreyttur í­ fingrunum við miklar skriftir, t.d. í­ prófum. Að öðru leyti hef ég ekki þurft að kvarta og krotið skilst.

Við Guðni erum sem sagt á sama báti.