Stefnir í gott sjónvarpskvöld hjá grasekklinum á Mánagötu. Sýn er með leik í ensku, Leeds : Sheffield United. Skjár einn frumsýnir spurningaþáttinn í kvöld. FRAM og Þróttur bítast um titilinn „besta liðið í Reykjavíkurkjördæmi norður“. Þetta var fyrsti þátturinn sem við tókum upp og því eðlilega nokkrir byrjunarhnökrar, t.d. er hann hæggengari en þeir sem síðar komu. Vona samt að fólk hafi gagn og gaman af. Sjónvarpið sýnir svo Meaning of Life – sem mér fannst æði þegar ég var fjórtán. Spurning hvort það mat hafi mikið breyst.
En svo er allt eins líklegt að Ólína heimti alla athyglina og ég missi af þessu öllu saman.
# # # # # # # # # # # # #
DV birtir lista yfir 100 skúnkalegustu pólitísku ráðningar sögunnar. Það er nú nokkuð kauðskt að álitsgjafarnir virðast ekki hafa komist upp í 100 tilnefningar og þess vegna eru 3-4 menn nefndir oftar en einu sinni á listanum. Það er klúður.
Svo virðast menn ekki muna mikið eftir sögunni, því þorri hinna tilnefndu hafa fengið bitlingana á síðustu 10-15 árum.
Svona efni er samt alltaf vinsælt og ágætt fyrir sinn hatt.