Llion hélt aftur heim til Lundúna í dag. Það var frábært að rifja upp tímann í Edinborg. Á gær dró ég hann á pöbbarölt ásamt Stebba Hagalín. Þeim varð strax vel til vina.
# # # # # # # # # # # # #
Á laugardag verður aðalfundur SHA, þar sem meðal annars er efnt til málþings um íslenska herinn – hvernig stjórnvöld reyna að koma upp her á laun. Kristinn Hrafnsson og Friðrik Guðmundsson, höfundar myndarinnar „Íslenska sveitin“ mæta og lýsa reynslu sinni frá Afganistan. Ekki missa af því.
Svo verður partý um kvöldið. Nú er gaman að vera til.
# # # # # # # # # # # # #
Mæti í viðtal á Talstöðinni kl. 9:20 í fyrramálið. Þar verður rætt um laugardagsfundinn og eflaust um stofnun Friðarhússins líka.
Við teljum að Friðarhús SHA ehf. sé orðið fjölmennasta einkahlutafélag á Íslandi. Það er ekki amalegt.
Allt gott fólk getur gerst hluthafar. Hægt er að leggja inn á reikningsnúmerið: 0130-26-2530 kt. 600404-2530. Verð á hlut er kr. 10.000, en vitaskuld er hægt að kaupa meira en einn hlut.
Palli og ég erum um þessar mundir á fullu að svipast um eftir barmmerkjagerðarverkefnum – enda fer hagnaðurinn af slíkum viðvikum beint í að kaupa fleiri bréf. Eftir sem áður erum við kræsnir á verkefnin. Við búum bara til merki fyrir aðila sem við erum sammála í veigamiklum atriðum. Við vinnum ekki fyrir fyrirtæki og ekki fyrir Framsóknarflokkinn eða frambjóðendur í prófkjöri íhaldsins.
# # # # # # # # # # # # #
Sagan af hvítlauks-hatandi andófsmanninum á bloggi Kjartans og Sylvíu er skemmtileg.
Kannski hugtakið harðlínumaður muni í framtíðinni gengisfalla á sama hátt og andófsmaður.
# # # # # # # # # # # # #
Þóra systir heldur áfram að birta myndir af barninu.
Sú frá kvennaverkfallinu er flottust.
# # # # # # # # # # # # #
Allt í skralli hjá Luton núna. Ekki vegna árangursins á vellinum – þótt þar mætti vissulega ganga betur (dottnir niður í fjórða sæti) – heldur er vallarmálin í uppnámi. Á áratugi hafa menn stefnt að byggingu nýs vallar en nú virðist málið aftur á byrjunarreit. Það er vægast sagt þungt hljóðið í stuðningsmönnum.