Ekki barst rétt svar við fyrstu vísbendingu og raunar ekki nema tvær ágiskanir – sem bendir til að spurningin sé í þyngsta lagi. Vindum okkur því í aðra vísbendingu.
Sem fyrr er spurt um virkjun.
Virkjun þessi vill oft gleymast þegar rætt er um íslenska raforkukerfið, engu að síður er aflgeta hennar á fjórða tug MW. Ekki er fjallað sérstaklega um virkjun þessa í virkjanabók Helga M. Sigurðssonar, sem Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen gaf út 2002 – en það liggur raunar í hlutarins eðli…
Hver er virkjunin?