Orkujarlinn 2005, 8. umferð, fyrsta vísbending

Það eru grí­ðarlegar sviptingar í­ Orkujarlinum. Snæbjörn Guðmundsson hefur tekið afgerandi forystu, eftir að hafa fengið fimm stig í­ tveimur sí­ðustu umferðum. Staðan er því­ þessi:

5 stig Snæbjörn Guðmundsson
3 stig Jóhanna Helgadóttir
3 stig Nanna Rögnvaldardóttir
2 stig Örn Úlfar Sævarsson
2 stig Gí­sli ísgeirsson
1 stig Hilmar Hilmarsson

Nú er spurt um frumkvöðul í­ í­slenskum orkumálum.

Frumkvöðull þessi hafði nokkuð annan bakgrunn en kollegar hans úr stétt fyrstu í­slensku verk- og tæknifræðinganna, því­ eftir útskrift starfaði hann um skeið við járnbrautakerfi Danmerkur og í­ stórri gasstöð. Þessi reynsla átti eftir að hafa áhrif á störf hans á Íslandi.

Hver er frumkvöðullinn?