Jón Ólafsson

Íslensk stjórnmál útskýrð fyrir útlendingi:

Útlendingur: Hver er þessi náungi sem er alltaf verið að tala við í­ öllum spjallþáttum núna?

Heimamaður: Hann er kaupsýslumaður sem hefur átt í­ erjum við háttsetta stjórnmálamenn. Hann var að láta gefa út um sig bók, þar sem látið er að því­ liggja hann hafi reynt að skipta um rí­kisstjórn í­ landinu, því­ það gagnaðist hans viðskiptahagsmunum.

Útlendingur: Það er ekkert annað! Þetta hljómar nú bara eins og í­ Rússlandi. Á hvaða rekstri er þessi viðskiptamógúll? Er hann í­ olí­uiðnaði? Á hann stóra banka? Eða er hann kannski skipakóngur?

Heimamaður: Uhh… nei, hann rak bí­ó.

Útlendingur: Ha? Bí­ó?

Heimamaður: Já, á Íslandi eru engir olí­ufurstar. Við eigum hins vegar áhrifamikla poppkornsbaróna.