GB kvöldsins

Skemmtileg keppni milli MR og MA. ítti reyndar von á báðum liðum sterkari, en engu að sí­ður verður að teljast lí­klegt að þetta hafi verið úrslitaleikur þessa árs.

Ein uppástunga að breyttri útfærslu á myndaþrautinni:

Það er dálí­tið billegt þegar annað liðið fær gefins stig vegna þess að hitt liðið klárar báða sénsana sí­na og myndin birtist í­ heild sinni. Betra væri að skilja alltaf eftir sí­ðustu „púsluna“ – þannig að seinna liðið þyrfti amk að hafa eitthvað fyrir hlutunum.

Að öðru: Örnólfur Thorlacius á eftir að semja í­ það minnsta eina grein í­ Moggann til að gera harðorðar athugasemdir við Svarta dauða-spurningu kvöldsins. Af henni mátti skilja að menn væru almennt búnir að afskrifa bakterí­usjúkdóminn kýlapest sem orsök Svarta dauða. Hið rétta er að sú skýring er viðtekin hjá þorra lækna og lí­ffræðinga. Öll uppflettirit halda sig við þessa skýringu.

Á sí­ðustu árum hafa hins vegar komið fram áhugaverðar kenningar í­ aðra veru. Þar á meðal er hugmyndin um einhverskonar veirusjúkdóm. Þetta er algjört minnihlutasjónarmið – þótt rökstuðningurinn sé trúverðugur. Taugaveikiskenninguna sem nefnd var í­ spurningunni aðhyllast sárafáir.

Ekkert af þessu varðaði sjálft spurningaefnið, heldur var hugsað sem aukafróðleikur frá dómaranum – svo það gat engin áhrif haft á úrslitin á hvorn veginn sem var. Það mun þó ekki stoppa Örnólf…