Á kvöld mun sá er þetta ritar snúa aftur sem dómari í spurningakeppni. Það verður í þættinum Strákarnir á Stöð 2, þar sem upphaflegu strákarnir þrír keppa við nýrri mennina þrjá.
Ég lofa spennandi og skemmtilegri keppni, þar sem færni þeirra kumpána í spurningaleikjum mun koma á óvart.
# # # # # # # # # # # # #
Önnur spurningakeppni í kvöld er undanúrslitaviðureign MA og MH. Á janúar sagðist ég halda með Hamrahlíð í ár og stend við það heit. Engu að síður hallast ég að sigri Akureyringa í kvöld. Mér finnst þeir sterkasta liðið sem ég hef séð í ár, þrátt fyrir að vera ekki nægilega sterkir í hraðaspurningum. Ég yrði þó hissa ef munurinn yrði meiri en 3-4 stig.
Sjálfur verð ég að taka upp keppnina, enda staddur í Friðarhúsi í kvöld að fylgjast með stórmerkilegri myndasýningu og að skrafa við góða friðarsinna fram eftir kvöldi.