Það hefur verið óvenjumikið af götuspilurum í sumar. Því fagna allir góðir menn.
Bjartsýnastur var þó náunginn sem stóð fyrir utan Nóatúnsverslunina í Nóatúni og lék á harmonikku um miðjan dag. Held að tvöhundruðkallinn frá mér hafi staðið undir veltunni hjá honum þann daginn.
# # # # # # # # # # # # #
HK stefnir hraðbyri að sæti í efstu deild í fótboltanum. Þróttarar virðast sprungnir á limminu, hafa tapað þremur af fjórum síðustu leikjum meðan Kópavogsbúar hafa unnið fimm í röð.
Ætli það hlakki ekki örlítið í Páli Einarssyni núna?