Jæja, Luton mætir Everton í 32-liða úrslitunum í deildarbikarnum. Þetta er enn einn útileikurinn, svo varla verður hann sýndur í sjónvarpi.
Síðast þegar við mættum Everton á útivelli lauk leiknum með 1:1 jafntefli og síðasta leik liðanna í þessari keppni lauk með 3:0 sigri okkar – þar sem Mike Newell skoraði einmitt tvívegis. Út frá þessu eigum við sigurinn vísan – þó vissulega sé nokkuð um liðið…
# # # # # # # # # # # # #
Sjónvarpið bauð upp á Þriðja manninn í gær. Það er frábær kvikmynd sem alltaf er jafngaman að horfa á. Þótt áhorfandinn fyrirlíti Harry Lime fyrir glæpi sína – þá held ég að allir voni innst inni að hann sleppi undan löggunni í eltingarleiknum í ræsinu. Eða er það bara ég sem er svona siðblindur?