Sagan segir að þegar Johnson forseti var spurður að því hvers vegna hann losaði sig ekki við Edgar J. Hoover, hafi hann svarað eitthvað á þá leið að betra væri að hafa Hoover inni í tjaldinu að pissa út – en fyrir utan það og pissa inn.
Mér varð hugsað til þessara orða í morgun þegar famelían rak nefið út í snjóinn og uppgötvaði að fyrir framan útidyrahurðina á Mánagötunni voru stórir hlandblettir í snjónum. Það bendir til að í morgunsárið hafi einhver þrjóturinn staðið og migið utan í húsið – kannski í pólitískum tilgangi, listrænum eða vegna þess að viðkomandi var mál að pissa.
Samkvæmt hugmyndafræði Johnsons forseta hefðum við betur boðið dónanum í bæinn og horft skellihlæjandi á hann spræna út um stofugluggann. Sé ekki alveg hvað hefði verið unnið með því.
# # # # # # # # # # #Â # #
Frambjóðandinn Steinunn verður í viðtali í þætti Andrésar Jónssonar kl. 13 á morgun, mánudag. Á það skal hlustað.