Jarðeplabyrgi

Á vikunni fékk ég að heimsækja kartöflugeymslurnar í­ írtúnsbrekkunni og skoða framkvæmdirnar sem þar hafa átt sér stað. Ef ég ætti hatt, væri ég núna að éta hann.

Ég hafði litla trú á þessu kartöflugeymsludæmi. ítti bágt með að sjá að hægt væri að breyta gömlum sprengiefnageymslum/kartöflubröggum í­ miðstöð fyrir myndlistarmenn, hönnuði og kaffihúsarekstur.

Núna, þegar búið er að breyta húsnæðinu grí­ðarlega, sést hversu flott hugmyndin er. Sýningarsalirnir í­ jarðhúsunum sem núna eru tilbúnir undir tréverk, eru þeir flottustu sem til eru í­ borginni.

Ég hef heyrt þeirri hugmynd varpað fram að Hönnunarsafn Íslands muni koma sér fyrir í­ jarðhúsunum þar til húsnæði þess verður tilbúið í­ Garðabænum e. 4-5 ár. Það er góð hugmynd.

Skyndilega er gamla hugmynd Reynis Vilhjálmssonar landslagsarkitekts um safnasvæðið Elliðaárdal farin að hljóma raunhæfari. Næsta skref væri að flytja aðalinngang írbæjarsafns niður í­ Elliðaárdalinn – nógu er u þrengslin mikil þarna uppá írtúnsholtinu.