Á gær lærði Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi mikilvæga lexíu.
Hann var boðaður í sjónvarp að takast á við Framsóknarmann um pólitískar ráðningar. Sjálfsagt hefur Dagur hugsað: „Hah! Þetta verður hægðarleikur. Að rassskella Framsóknarmann í umræðum um pólitíska spillingu – það getur hvaða barn sem er gert!“
Hugsunarvilla Dags var einföld. Framsóknarmenn eru sérfræðingar í pólitískri fyrirgreiðslu – það er einmitt það sem gerir þá ERFIíA andstæðinga en ekki auðvelda. Á stuttu máli sagt náði borgarfulltrúinn sem einu sinni var óháður sér aldrei á strik. Held sannast sagna að hann hafi orðið feginn þegar umræðunum lauk.
Hvað hefur eiginlega komið fyrir Dag Eggertsson? Frá því að Samfylkingin náði ekki markmiðum sínum í kosningunum í vor, hefur hann verið eins og draugur. Ekki þarf hann í það minnsta að hafa áhyggjur af því lengur að standa í skugganum af Stefán Jóni, sem er að stökkva til Afríku. Og ef kratarnir ná eitthvað að rétt úr kútnum í vor er smáséns að Steinunn Valdís detti inn á þing. Þá væri borgarstjórnarflokkur Samfylkingarinnar orðinn áhugaverður: Dagur, Björk Vilhelmsdóttir, Oddný Sturludóttir og Sigrún Elsa.
Ætli fasteignasali myndi ekki lýsi þessum hópi með þeim orðum að hann „bjóði upp á mikla möguleika“?
# # # # # # # # # # # # # #
Eftir þriggja daga heimveru með leiðindakvef komst Ólína aftur á Sólhlíð í morgun. Hún ljómaði upp og var byrjuð að kubba hjá Boggu deildarstjóra áður en hún hafði rænu á að veifa mér á brott. Ólína er mjög nákvæm varðandi það hvar fólk á að vera í tilverunni. Henni finnst gaman að fara á leikskólann og henni finnst gaman að koma aftur heim – en við foreldrarnir eigum ekkert með að stoppa neitt á leikskólanum til að spjalla við starfsfólkið. Og ef við gerum okkur líkleg til að ætla að drolla eitthvað, þá er okkur hreinlega ýtt út.