Loftnetið fyrir sjónvarpið er í steik. Vandinn verður ekki leystur með því að klifra upp á þak, heldur þarf að skipta út einhverjum tenglum á þeim enda snúrunnar sem er hér innandyra. Það verður víst ekki gert án þess að hafa þartilgerð tæki og kunnáttu. Held meira að segja að þetta sé ekki djobb fyrir venjulegan rafvirkja, heldur sérstakan loftnetskarl/konu.
Lýsi hér með eftir uppástungum. Lumar einhver á símanúmerinu hjá klókum iðnaðarmanni? Ekki að undirtektirnar við spurningu minni um Heimastjórnar-Dabba fylli mig bjartsýni.
# # # # # # # # # # # # #
Um daginn hélt ég því ranglega fram að Luton væri að spila við WBA á föstudagskvöld á Sky. Hið rétta er að þetta er útileikur gegn toppliðinu Birmingham. Ekkert við þennan leik gefur tilefni til mikilla væntinga, en auðvitað mætir maður í Ölver kl. 19:30.
# # # # # # # # # # # # #
íþróttamaður ársins – handboltamaður, eina ferðina enn. Hvað á manni að finnast um það?
Á það minnsta voru menn nógu skynsamir til að velja ekki kylfinginn. Daginn sem golfari verður valinn íþróttamaður ársins mun ég taka upp baráttu fyrir því að spurningakeppnisþátttakendur fái aðild að íSí.
# # # # # # # # # # # # #
Hvernig væri að rista Moggablogginu blóðörn?