David Beckham, varamaður í mistæku Real Madrid-liði er að flytja til Bandaríkjanna þar sem hann ætlar að spila fótbolta í deild sem varla kæmist á lista yfir 20 bestu deildarkeppnir í heimi. Að sjálfsögðu ætlar allt vitlaust að verða yfir þessum stórtíðindum.
Egill Helgason bendir réttilega á fáránleika þessa. Ég get þó ekki verið sammála Agli um að flutningur Péle til Bandaríkjanna hafi verið svo merkilegur. Péle fór til New York Cosmos árið 1975 – það var meira en tíu árum eftir að kappinn var á toppnum.
Það er raunar mjög áhugaverð saga, þegar Bandaríkjamenn reyndu að byggja upp fótboltaíþróttina á áttunda áratugnum. Það var gert með því að kaupa nokkrar útbrunnar stórstjörnur, dýrum dómum. Restin af liðunum var einkum skipuð miðlungsmönnum frá fjárvana enskum 2. deildarliðum sem sendu leikmenn sína þangað yfir sumarmánuðina til að spara launagreiðslur. – Hringir þetta einhverjum bjöllum?
En það er einkennandi að um leið og Beckham ákvað að fara til BNA, byrjaði fréttaflutningurinn að ganga út á hvað hann fengi í laun og númer hvað hann yrði á launalistum leikmanna.
Þetta er afar hvimleiður hluti af amerískum íþróttakúltúr – að velta því sífellt fyrir sér hversu mikið þessi eða hinn leikmaðurinn fái í laun. íþróttaafrek virðast lítils virði nema hægt sé að mæla þau í peningum. Þannig einkennir það golf, tennis og hnefaleika að þar er sífellt tekið fram hversu hátt verðlaunafé viðkomandi sigurvegari hafi unnið sér inn. Bestu leikmennirnir í hópíþróttunum fá sömuleiðis titilinn „Most Valuable Player“.
Sem betur fer eru Evrópubúar skömminni skárri með þetta. Enn sem komið er a.m.k.sleppa íþróttafréttamenn því að hnýta aftan við fréttir af sigrum á fótboltavellinum hvað áætlað sé að viðkomandi félag græði. Raunar finnst mér að íslenskir íþróttafréttamenn ættu að sjá sóma sinn í að draga úr þessum endalausu fjármálaskýrslum þegar sagðar eru fréttir af íþróttaafrekum.
# # # # # # # # # # # # #
Á morgun stefnum við Sverrir að því að ganga endanlega frá einkunum fyrir tæknisögunámskeiðið okkar Skúla. Þar með getum við endanlega slegið striki yfir námskeiðið. Næst er að slá striki yfir Moggabloggið.