Barninu tókst að smita foreldra sína af magakveisu. Á einhvern óskiljanlegan hátt tókst að drösla Ólínu á leikskólann í gærmorgun og síðan lögðumst við Steinunn í bælið. Raunar þurfti ég að berja mig í kennslu í Rafheimum og í Háskólanum, en lá annars og skalf.
Guðmundur mágur kom í heimsókn seinnipartinn og tók að sér að leika við krakkann meðan við lágum í hálfgerðu móki. Um kvöldmatarleytið tók landið að rísa á ný og í morgun var heilsan að komast í lag á ný.
Það er því ekki frá miklu að segja. Jú, ég hlustaði á GB, þar sem enn á nýÂ var bara boðið upp á ójafnar viðureignir. MR-liðið er sterkt. Verslingar munu styrkjast. Egilsstaðir þurfa að vera heppnir með drátt, eigi liðið að komast lengra en í fjórðungsúrslitin.
# # # # # # # # # # # # #
Halla Gunnarsdóttir Kaninku-bloggari er í framboði til formanns KSí. Kaninku-klanið stendur saman. Halla lifi, Moggabloggið farist!