Einhvern veginn finnst manni að sérframboð eldri borgara (og e.t.v. öryrkja líka) hafi verið boðað fyrir hverjar einustu þingkosningar. Á flest skiptin hefur þungavigtarfólk úr þessum þjóðfélagshópum farið fyrir slíkum undirbúningshópum – en ekkert orðið úr framboði, enda markmiðið frekar að hrella stjórnvöld en að láta á þetta reyna.
Núna virðist líklegra að framboð aldraðra og öryrkja komi fram í raun og veru – tvö frekar en eitt meira að segja.
Baldur ígústsson forsetaframbjóðandi fer fyrir öðrum hópnum, ásamt nokkrum körlum. Hinum hópnum virðist stýrt af nokkrum virðulegum eldri konum – og hlýtur að teljast vænlegra framboðið, þótt hvorugt sé líklegt til að koma fulltrúa á þing.
Á skosku þingkosningunum fyrir fjórum árum kom upp sama staða. Eldri borgarar höfðu hótað framboði án þess að vera teknir sérstaklega alvarlega. Skömmu fyrir kosningar komu svo fram tvö slík framboð – og það meira að segja sama daginn.
Annar flokkurinn náði fulltrúa inn á skoska þingið. Það var formaður flokksins, sem var frægur fyrir að vera fyrrum stjóri knattspyrnuliðsins Motherwell. Raunar voru ýmsir fyrrum knattspyrnukappar í framboði fyrir flokkinn, sem kann að hafa skýrt velgengnina.
Spurning hvort íslensku öldungaframboðin ættu að taka upp þessa tækni og stilla upp gömlum fótboltahetjum? Albert virkaði nú vel – og Ellert B. Schram er enn með bakteríuna… Hvaða fleiri kempur eru í boði?
# # # # # # # # # # # # #
Sælkerar taka frá föstudagskvöldið.
# # # # # # # # # # # # #
Handboltalandsliðið er búið að vinna tvo leiki í röð og þjóðin er að tryllast. Ef ég væri Geir Haarde myndi ég rjúfa þing og efna til kosninga á laugardaginn.
Ef ég væri Geir Haarde myndi ég reyndar líka setja bráðabirgðalög til höfuðs Moggablogginu – en það er önnur saga.