Henry Birgir, aðalíþróttafréttamaður Fréttablaðsins, er skrítin skrúfa. Fáir menn í hans stétt eru jafnóvinsælir hjá stuðningsmönnum margra félaga, enda hefur hann varpað fram allnokkrum drullubombunum – nú síðast skrifaði hann makalausa grein um handboltadeild Hauka, sem spáð var miklum hrakförum, falli og gjaldþroti.
Henry Birgir bloggar á Vísisvefnum og birtir þar m.a. ítarlegri greinargerðir um leiki en þær sem birtast í prentútgáfu blaðsins. Það er athyglisverð lesning. Á ljós kemur að helsti mælikvarði Henrys Birgis á gæði íþróttakappleikja er sá hvort hann fær gott kaffi, snúða og vínarbrauð í blaðamannastúkunni. Hann gefur leikjum t.a.m. einkunn fyrir það hversu duglegir heimamenn séu við að ryðja í hann kökum.
Þetta er skemmtileg og fersk nálgun í blaðamennsku. Hvernig væri ef umsjónarmenn menningarsíðunnar tækju upp sömu taktík og felldu inn í myndlistar- og leiklistardóma sína einkunnagjöf um snitturnar og hvítvínið í frumsýningarpartýinu.
Sömuleiðis gætu almennir fblaðamenn bætt slíkum upplýsingum inn í fréttir sínar. „Á blaðamannafundinum kynnti ráðherra niðurstöður starfshópsins. Skýrslan reyndist mikil að vöxtum, en það sama verður ekki sagt um kaffibrauðið sem boðið var uppá í Ráðherrabústaðnum. Það voru þurrar tebollur og staðið kaffi. Þurfti blaðamaður meira að segja stoppa við í sjoppu og kaupa sér pylsu að fundi loknum – hversu ömurlegt er það!!!“
Ekki?
# # # # # # # # # # # # #
Á Fréttablaðinu í morgun eru birtar nokkrar setningar sem hafðar eru eftir mér um tillögur Björns Bjarnasonar um varaliðssveitir lögreglunnar. Eitthvað sagði ég nú við blaðamanninn um að til þessa hefðu sveitir af þessu tagi einkum falist í því að Heimdellingar væru vopnaðir kylfum og þeir látnir berja á pólitískum andstæðingum.
Sú tilvitnun rataði ekki inn í blaðið.
Á dag er 30.mars. Þá mæta allir góðir menn á þessa samkomu. Þarna verða krásir á borðum, en Moggabloggið étur það sem úti frýs.