Svikahrapparnir sjöhundruð

Það var boðið upp á margar furðulegar fréttir í­ dag, sem vera ber. Sú skringilegasta var þó ekki gabbfrétt, heldur sá uppsláttur að stuðningsmenn álversins segist hafa „rökstuddan grun“ um að 700 andstæðingar hafi flutt lögheimili sitt í­ Hafnarfjörðinn og þannig ráðið úrslitum. Þessu var svo slegið upp í­ öllum helstu fjölmiðlum – það eru slök vinnubrögð.

Látum vera ef álverssinninn hefði staðhæft að andstæðingar hans hafi beitt bellibrögðum, skrökvað eða haft í­ hótunum – þar hefði að miklu leyti verið um huglægt mat að ræða og því­ sjálfsagt að sú skoðun hefði fengið að koma fram. En hér er um að ræða staðhæfingu sem á að vera hægðarleikur að rökstyðja eða afsanna með einföldu sí­mtali til þjóðskrár – eða jafnvel með því­ að rýna í­ gögn sem má meira eða minna finna á netinu.

Með einu sí­mtali hefði mátt komast að því­ hversu margir færðu lögheimilið til og frá Hafnarfirði fyrstu mánuði þessa árs, samanborðið við fyrri ár. Ef munurinn á þeim tölum er fjarri því­ að nema 700 manns, liggur beint við að afgreiða talsmanninn sem rugludall og henda „fréttinni“ í­ ruslið.

En það er auðvitað ekki eins þægilegt – eða skemmtilegt – fyrir fréttamanninn. Það er miklu betra að reka hljóðnemann framan í­ viðmælanda sem slær fram órökstuddri tilgátu og kynna hana til sögunnar sem ásökun viðkomandi aðila og bí­ða þess að einhver annar reyni að hrekja hana – frekar en að kanna sjálfur trúverðugleika frásagnarinnar.

Hlutverk fréttamannsins hlýtur að vera annað og meira en að skrásetja samsæriskenningar viðmælenda sinna og snara þeim í­ loftið án athugunnar. Það er úrvinnslan og rannsóknarvinnan sem gerir frásögnina að frétt. Kannski fréttastofurnar séu farnar að trúa öllu hæpinu í­ kringum bloggið og taki sér það núna til fyrirmyndar? Það þyrfti þá ekki að koma á óvart þótt heimildarmaður álverssinnans hafi sí­nar pottþéttu heimildir frá þriðja manni, sem hleraði fyllerí­sraus á Ölstofunni?

# # # # # # # # # # # # #

Annars myndi ég taka ofan fyrir hverri þeirri hreyfingu sem næði að sannfæra 700 manns um að flytja lögheimilið sitt í­ annað sveitarfélag. Það er tómt bögg og vesen sem fylgir því­ að hafa lögheimilið og raunverulegt heimili hvort á sí­num staðnum. Bankar, opinberar stofnanir, félagasamtök o.fl. uppfæra í­ sí­fellu skrár sí­nar í­ samræmi við þjóðskrá.

Nú getur vel verið að góðhjartaðir Reykví­kingar elski Kapelluhraunið, en elska þeir það nógu heitt til að sækja allan póstinn sinn í­ Fjörukránna?

# # # # # # # # # # # # #

Það var grátlegt að sjá MK-inga henda frá sér unnum úrslitaleik í­ GB á föstudagskvöld. Kópavogsbúar voru betra liðið í­ úrslitunum og eru í­ mí­num huga klárlega lið ársins. MK, Versló og MR eru í­ mí­num huga sigurstranglegustu lið næsta árs – jafnvel í­ þessari röð. Akureyri og Hamrahlí­ð eru þar skammt á eftir. Það er fágætt að svona margir skólar hafi sterkum liðum á að skipa í­ einu – sem er hið besta mál.

# # # # # # # # # # # # #

Rí­kisútvarpið er orðið ohf eða eitthvað álí­ka. Það þýðir að fækkað er um nokkra millistjórnendur og peningarnir sem sparast leggjast oná laun nokkurra yfirmanna.

Jafnframt hefur „nýja“ fyrirtækið þá yfirlýstu stefnu að auka enn hlutfall „í­slenskrar dagskrárgerðar“. Það þýðir á mannamáli að við megum búast við enn fleiri beinum útsendingum frá Íslandsmótinu í­ hniti og blaki – enda fást þá margar ódýrar mí­nútur af „í­slensku efni“. Stuð!

Á fjölskylduboði í­ dag var staðhæft í­ mí­n eyru að RÚV skilgreindi útsendingar frá Formúlunni sem „innlenda dagskrárgerð“ þar sem þar væri þulur í­ stúdí­ói að lýsa. Gaman væri að vita hvort þetta sé rétt.

# # # # # # # # # # # # #

Ef marka má einkabankann, er ég ekki búinn að fá launin mí­n fyrir þessi mánaðarmót. Það er ergilegt í­ ljósi þess að hinar og þessar greiðslur eru gjaldfærðar alveg í­ mánaðarbyrjun – og það má treysta því­ að bankinn rukkar sem mest hann má fyrir allar framúrkeyrslur.

Megi Moggabloggið lenda í­ sjóðþurrð!