Á gær fór ég í fyrsta sinn í konsingamiðstöð VG á Grensásvegi. Um er að ræða gamla ASí-húsið, nánar tiltekið hæðina sem hýsti listasafnið.
Þetta er flott skrifstofuhúsnæði á góðum stað í bænum. Það hefur þó staðið autt í tvö ár.
Á hvert sinn kemur að kosningum og prófkjörum rignir yfir stjórnmálaflokka og frambjóðendur tilboðum um húsnæði af þessu tagi. Það er enginn hörgull á tómu skrifstofuhúsnæði.
Samt er verið að byggja skrifstofuturn á horni Grensásvegar og Suðurlandsbrautar og fleiri stórhýsi eru boðuð á svæðinu. Þetta hefur mér alltaf þótt skringilegt – en hvað veit ég svo sem um fasteignaviðskipti.
# # # # # # # # # # # # #
Páskabíltúrinn var stopp á Þingvöllum. Skoðaði upplýsingamiðstöðina á bakka Almannagjár í fyrsta sinn – fannst ekki mikið til koma. Öllu skemmtilegra var að skoða upplýsingaskiltin sem búið er að koma upp á svæðinu. Þau voru mörg hver mjög fróðleg. Fannst samt skringilegt að lesa textann við Drekkingarhyl. Þar voru talin upp ártöl og nafngreindar konur sem drekkt var í hylnum. Þetta eru brotakenndar upplýsingar úr dómabókum og annálum. Af skiltinu mátti hins vegar skilja að þetta væri tæmandi listi – og kemur væntanlega mörgum túristanum á óvart að Íslendingar hafi „bara“ tekið 10-12 konur af lífi á mörghundruð ára tímabili.
Hmmm… færsla sem endar á pælingum um Drekkingarhyl – hvernig skyldi Moggabloggsbölbænin verða? Þetta er eiginlega of auðvelt…