Hitabylgjan í borginni hefur þegar fellt sitt fyrsta fórnarlamb. Skeggið mitt fékk að fjúka um helgina og ég fæ aftur um bera vanga strokið.
Er að spá í að koma mér upp kerfi – að byrja að safna skeggi fyrsta vetrardag en raka mig svo aftur á sumardaginn fyrsta. Er þetta ekki fínt plan?
# # # # # # # # # # # # #
Á tengslum við þessa ríkisborgararéttarumræðu rámaði mig eitthvað um að einhver yfirmaður handboltans í Eyjum hefði fyrir nokkrum misserum sakað Stjörnumenn um að nota loforð um ríkisborgararéttindi sem gulrót fyrir leikmenn sem Stjarnan lokkaði til sín frá öðrum liðum.
Getur verið að ég muni þetta rétt? Urðu einhverjir eftirmálar af þessu?
# # # # # # # # # # # # #
Á dag er mánudagur. Það þýðir: Lost í sjónvarpinu. Þættirnir hafa súrnað mjög í seinni tíð og atburðarásin orðin alltof hröð og ruglingsleg á köflum. Þetta eru þó eiginlega einu sjónvarpsþættirnir sem ég reyni að missa ekki af.
Megi Moggabloggið lenda í flugslysi og týnast á dularfullri eyju.