1.maí er kaffidrykkjudagurinn mikli. Þar er hægt að velja úr fjölda kaffiboða og oftar en ekki slær maður til og sest inn á 3-4 stöðum og þjáist svo af koffíneitrun næstu daganna.
SHA hefur vit á að skipuleggja morgunkaffi og situr eitt að tímanum fram að kröfugöngu. Fyrir vikið er alltaf smekkfullt hjá okkur í kaffinu og nóg af vinum og kunningjum. Þar sem 1. maí er einnig stofndagur FRAM, er sömuleiðis hægt að ganga að kaffi og kökum vísum í FRAM-heimilinu þennan daginn. Á gær sleppti ég því samt að fara í Safamýrina.
Kaffiframboðið eftir göngu veltur nokkuð á því hvort um kosningaár er að ræða. Þegar engar eru kosningarnar standa verkalýðsfélögin fyrir stærstu veislunum. BSRB-kaffið á Grettisgötunni er sígilt. Þá er líka afar athyglisvert að líta við hjá gömlu kommunum í MíR. Þangað hef ég raunar ekki komið á 1. maí frá því í menntó.
Kosningavorin eru stjórnmálaflokkarnir hins vegar í aðalhlutverki. Á Alþýðubandalaginu var alltaf hópur fólks sem sá Hótel Borg í einhverjum hillingum og vildi hvergi annars staðar vera á 1. maí. Þetta fólk kom því til leiðar að fyrsta verk nýs kosningastjóra var að bóka Borgina á 1. maí. Þegar sú bókun var í höfn töldu viðkomandi nánast að sigurinn í kosningunum væri í höfn.
Á hvert sinn komu hins vegar sömu gallarnir í ljós. Hótel Borg, með sín risastóru borð, tekur sárafáa í sæti og þjónustan er fáránlega hæg. Stórir hópar fólks þurfa frá að hverfa þegar 1.maí-kaffið er haldið á Borginni og enda jafnvel á kosningaskrifstofum hinna flokkanna.
Hluti af þessari Hótel Borg-rómantík skilaði sér inn í VG. Fyrir vikið hefur flokkurinn tvisvar eða þrisvar tekið Borgina á leigu á 1.maí – og í öll skiptin urðu menn jafnhissa á að enginn kæmist fyrir, gestirnir fengju hvorki vott né þurrt og að þjónustan væri í molum.
Strax í janúar fór ég niður á skrifstofu VG til að afstýra því að Borgar-fíaskóið yrði endurtekið. Bætt var inn á minnislista kosningabaráttunnar: „Aldrei aftur fokkíng HB!“
Það hreif. Á gær var 1.maí-samkoman á NASA, sem er skárra hús þrátt fyrir alla sína galla. Þegar dagskráin var að mestu tæmd röltum við Steinunn yfir Austurvöllinn og rákum inn nefið hjá Samfylkingunni á Hótel Borg. Þar báru menn sig vel, en voru þó pínulítið aumir yfir að fáir hefðu komist inn og þjónustan verið í molum…
# # # # # # # # # # # # #
Leikmenn FRAM sýna það hér hvers vegna þeir ættu að halda sig við fótboltann.
Megi Moggabloggið fá þetta lag á heilann…