Tímaritavefur Landsbókasafnsins er að skanna inn Þjóðviljann í kyrrþey – það er, nú eru komnir meira en tíu árgangar inn á vefinn án þess að það sé nefnt á forsíðunni sem innskönnunarverkefni sem er í gangi. Tímaritavefurinn er frábær, en það væri svo auðvelt að gera hann svo miklu, miklu betri – ekki hvað síst með því að setja inn örstuttar lýsingar á tímaritunum og efni þeirra.
Þessa daganna er ég að lúslesa íþróttasíður Þjóðviljans frá fimmta áratugnum. Frímann Helgason var langbesti íþróttaskríbent landsins á þessum árum og því nauðsynlegt að kynna sér skif Þjóðviljans. En mikið djöfull er furðulegt að lesa allar þessar greinar um hvað sovéskir fótboltamenn séu að gera góða hluti…
# # # # # # # # # # # # #
Luton fékk á sig tvö mörk á lokamínútunum og tapaði á útivelli gegn Tranmere. Helvítis, djöfull. Mér sýnist lítil von til að fá neitt út úr þessu keppnistímabili annað en smábikarævintýri í besta falli…
# # # # # # # # # # # # #
Barnið hefur tekið ástfóstri við Nylon-sönghópinn. Nokkrum sinnum á dag fær hún að horfa á Nylon syngja „Ég er furðuverk“ og dansar og syngur með. Hún upplýsir reglulega að þær í nælon séu vinkonur hennar – eða jafnvel frænkur.
Vill til að hún heldur líka upp á Mínus.
# # # # # # # # # # # # #
Sænska löggumyndin í Sjónvarpinu var ekki alveg að virka. Steinunn lét það fara í taugarnar á sér alla myndina að Wallander liti út eins og írni Finnsson. Plottið var ótrúlega þunnt á köflum.
Þá verður nú eitthvað annað að lesa Rebus – ef helv. Amazon skilar henni að lokum til landsins…