Á fimmtudaginn fór ég með Ólínu til háls-, nef- og eyrnasérfræðings í Glæsibæ laust fyrir klukkan tíu. Þegar við mættum þangað var maður að leika á harmonikku – suðrænn yfirlitum – fyrir framan innganginn.
Ég gaf honum smápeninga. Að hluta til vegna þess að mér fannst hann eiga skilið að fá smápeninga fyrir að lífga upp á annars ferlega gráan og dauðyflislegan fimmtudagsmorgun. Að hluta til vegna þess að ég vissi að hann færi í taugarnar á lögregluyfirvöldum.
Að leika á harmonikku fyrir framan íslenskan súpermarkað er nefnilega brot á íslenskum grunngildum. Fólk sem gerir það er sent úr landi.
Úr því að lögregluyfirvöld trysta sér til að gefa út kröfur um brottflutning fólks á grundvelli þess að það „brjóti gegn grunngildum“ – þá hlýtur að vera til skilgreining á því hvað teljist grunngildi. Ekki satt?
Er þá ekki rökrétt krafa okkar þegnanna að listinn yfir íslensk grunngildi verði birtur? Það gæti t.d. gerst á vef dómsmálaráðuneytisins (svona úr því að útlendingar mega ekki brjóta gegn grunngildum – þá er ekki nema sanngjarnt að þeim sé gerð grein fyrir því hvað teljast grunngildi.)
Mér er því spurn – er það brot á grunngildum samfélagsins að:
* finnast forseti lýðveldisins oft og tíðum vera bölvaður froðusnakkur?
* finnast biskup Íslands vera tepra og íhaldskurfur?
* vera almennt þeirrar skoðunar að skopskyn þjóðarinnar sé afleitt – og að það sé hið besta mál að Randver hafi verið rekinn – með þeim rökum að fjórir Spaugstofugrínarar séu illskárri en fimm?
* geta ekki haldið með fótboltalandsliðinu – við erum bara of leiðinlegt fótboltalið?
* finnast Hannes Hafstein vera fáránleg persóna frekar en aðdáunarverð?
* vona að Ísland komist ekki í öryggisráðið?
* vera drullusama þótt íslenskir kapítalistar kaupi sjoppu í útlöndum?
* þykja SigurRós foxleiðinleg?
* telja að allar aðrar þjóðir en Ísland eigi meiri rétt á Hutton-Rockall?
– Ef svarið við þessum spurningum er já, þarf ég alvarlega að hugsa minn gang…