Skálkaskjól

Fráfarandi borgarstjóri hélt áfram að sökkva sér í­ Kastljósi kvöldsins. Þar var deilt um hvort hann hefði náð að lesa og skilja sex sí­ðna samning á ensku.

Frekar en að þræta fyrir að hafa náð að blaða í­ gegnum skjalið finnst mér að Vilhjálmur ætti að leggja fram ræðu sí­na frá ví­gslu friðarsúlunnar – til sönnunar þess að hann kann augljóslega ekki ensku og gat því­ aldrei áttað sig á innihaldi skjalsins…

# # # # # # # # # # # # #

Leikurinn í­ kvöld var frábær skemmtun. Ég hef ekki séð annað eins tempó í­ leik í­ þessari deild – og sjaldan í­ deildinni fyrir ofan. Það var aldrei dautt augnablik í­ fyrri hálfleik og raunar ekki í­ þeim seinni heldur, fyrr en við drápum leikinn á 65. mí­n. með því­ að komast í­ 3:1.

Darren Currie var frábær í­ leiknum og markið hans alveg magnað. Furlong gamli skoraði mark og fiskaði ví­ti. Drew Talbot hljóp allan tí­mann og átti þátt í­ tveimur mörkum. Afgreiðslan á fyrra ví­tinu hjá Spring var lí­ka frábær.

4:1 heimasigur gegn Northampton er vel viðunandi. Nú er bara að fara að hala inn sigra á útivöllum og þá gæti alveg farið að rætast úr þessu tí­mabili, þótt ekki sé ég bjartsýnn.