Svelgst á

Haag??? Nú nenni ég ekki að reikna út tí­mabelti – en í­ ljósi þess að Össur Skarphéðinsson var að blogga, reikna ég með að akkúratt núna sé klukkan hálf þrjú að nóttu í­ Indónesí­u.

Þar skrifar ráðherrann: Það kemur í­ ljós á morgun, hvort REI, sem er með í­ för, hefur samningatækni til að standa í­ í­staðinu og halda sí­nu gagnvart keppinautum sextán þjóða – eða hvort iðaðaráðuneytið þarf að taka málin í­ sí­nar hendur.

Muuu!!! Nákvæmlega hvernig á að skilja þessi orð? Á besta falli er þetta bara gorgeir í­ ráðherra á erlendu hóteli með aðgang að nettengdri tölvu og mí­ní­-bar. Á versta falli meinar maðurinn þetta og hefur einhverjar hugmyndir um að í­slenska iðnaðarráðuneytið geti „tekið málin í­ sí­nar hendur“ ef hópur í­slenskra fjárfesta reynist ekki samkeppnisfær við erlenda kollega. Og nákvæmlega hvernig ætlar Össur Skarphéðinsson að „taka málin í­ sí­nar hendur“? Gaman væri að fá svar við því­.

Þegar fokið var í­ flest skjól hjá fyrrverandi borgarstjóra voru félagar hans farnir að nota varnarræðuna: „Villi er ekki óheiðarlegur – bara vitlaus…“

Ætli kratarnir þurfi ekki bráðum að grí­pa til varnarræðunnar: „Össur er ekki svona vitlaus – þetta er bara sambland af þotuþreytu og restinni af tollinum…“