Auður Lilja er á þingi um þessar mundir í fjarveru ílfheiðar Ingadóttur. Þessi fyrirspurn hennar til ráherra er ansi góð. Gaman verður að heyra menntamálaráðherra klóra sig út úr þessu.
# # # # # # # # # # # # #
Á dag birti Fréttablaðið lista yfir minnistæðustu setningar á íslensku. Ég er meðal álitsgjafa, en lítið fer fyrir mínum tilnefningum í greininni.
Það er samt pínlegt fyrir Davíð Oddsson að brandari sem hann stal frá Churchill (og sem Churchill hefur vafalítið stolið frá einhverjum öðrum) – skuli vera tilnefndur og birtur sérstaklega í blaðinu í rammagrein. Það væri nú illa komið fyrir Íslendingum ef hnyttnustu ummælin væru endursögn á útlenskum brandara.
Hvað tilnefndi ég sjálfur? Jú, e-ð frá Þórbergi, Vélstrokkaða tilberasmjörið hans Guðmundar Finnbogasonar – og vitaskuld eiturpillu Magnúsar Kjartanssonar um Vilhjálm Þór og fálkaorðuna, svo eitthvað sé nefnt.