Tíu stiga frádrátturinn í vikunni setti Luton í botnsætið. Á dag unnum við Southend á heimavelli og komumst úr neðsta sætinu (reyndar bara á markatölu). Erum ennþá 4-5 stigum frá því að losna úr fallsæti.
Reynum að ná því fyrir jól.
Og svo er bara að vinna Brentford úti í bikarleiknum á þriðjudagskvöld…
Viðbót, kl. 20:30 – Vá, ég var nánast farinn að skæla við að lesa umræðurnar á Luton-spjallsvæðinu mínu í kvöld. Allir eru svo innilega glaðir. Menn eru vitaskuyld ánægðir með sigurinn og himinlifandi með að losna við núverandi stjórnendur – en mestu skipti að Blackwell framkvæmdastjóri, sem fyrr í vetur skammaði stuðningsmennina fyrir neikvæðni, baðst afsökunar og sagðist hafa haft á röngu að standa en stuðningsmennirnir verið í fullum rétti. Það er alltaf gott að menn geti viðurkennt mistök.
Ég hef ekki upplifað svona jákvæða stemningu í kringum liðið í meira en ár. Það hefur greinilega líka sínar góðu hliðar að lenda með bakið upp að veggnum…