Rakst á frásögn af leik í fyrstu umferð bikarkeppni KSÁ 1964, milli íBV og B-liðs íA.
Leiknum lauk með sigri Eyjamanna í venjulegum leiktíma – 9:8.
Þetta hlýtur að vera mesta markasúpa í opinberum knattspyrnuleik í meistaraflokki karla, þar sem þó munar ekki nema einu marki á liðunum. (Eflaust má finna dæmi um 17 marka leiki eða meira í neðri deildunum þar sem sama liðið skorar flest eða öll mörkin.) Þekkja menn sambærileg dæmi?
Reyndar hefðu Skagamenn átt að skora níu mörk í leiknum að mati annars línuvarðarins – en hann móðgaðist svo þegar dómarinn tók ekki mark á bendingu hans að hann henti sagði sig frá leiknum, sem væntanlega hefur klárast með einum línuverði.