Jón ömmubróðir minn er búinn að taka saman skemmtilegt kver með ýmsum upplýsingum um forfeður okkar og -mæður. Þar kemur t.d. fram að Þóra Jónsdóttir (langömmusystir mín og fyrsta menntaða hjúkrunarkona landsins) var mikill töffari – og lét koma fyrir fyrstu skólplögninni á ísafirði.
Langafi – sem ég man eftir sem smákrakki – var í gróðabralli með Einari Ben og lenti með honum á heljarinnar fylleríi á skipi á leið til Íslands, sem hélt áfram eftir að allir innanborðs voru settir í sóttkví við heimkomuna (að sögn til að hindra að Sigurður Eggertz gæti tekið þátt í bæjarstjórnarkosningum). Meðan á þessu stóð var gefið út blað (langafi var ábyrgðarmaður) og ágóðinn notaður í að kaupa meira brennivín. Og það sem meira er – smkv. Gegni eru eitt eða tvö eintök til!!! Nú liggur leiðin á Þjóðdeildina.
# # # # # # # # # # # # #
Matthew Spring skoraði beint úr aukaspyrnu í uppbótartíma á útivelli gegn Port Vale í uppgjöri botnliðanna í dag og tryggði okkur 1:2 sigur. Erum fjórðu neðstir og tveimur stigum frá því að losna úr fallsæti.
Næsti leikur er úti gegn Yeovil. Eftir hann verða líklega flestir bestu menn liðsins seldir fyrir slikk til að létta á launakostnaðinum. Við verðum með vængbrotið lið gegn Liverpool næsta laugardag.
# # # # # # # # # # # # #
Alla vikuna hef ég heyrt auglýsingar um flugeldasýningu Rásar 2 og björgunarsveitanna.
Getur einhver útskýrt fyrir mér lógíkina í að útvarpsstöð standi að flugeldasýningu? Er hægt að hugsa sér lélegra útvarpsefni?