Bögg

Ég veit ekki hvort hugtakið bögg hefur verið skilgreint með nægilega afgerandi hætti. Hér eru tvær uppástungur:

i) Bögg er þegar maður labbar út af vinnustaðnum sí­num til að sækja barnið á leikskóla, en sér að það er sprungið á bí­lnum, fer í­ skottið og uppgötvar að hólfið með varadekkinu er fullt af vatni/klaka og ALLT í­ því­ er: blautt, kalt, skí­tugt… Eftir að tekst að losa varadekkið þarf að mylja klakann af með hamri. Tjakkurinn hefur orðið fyrir vatnsskemmdum og sveifin er týnd. Meðan á þessu stendur hlustar maður á Ísland taka fyrir Þjóðverjum í­ útvarpinu.

ii) Bögg er þegar fótboltaliðið manns í­ enska boltanum vinnur upp tvö mörk á útivelli, til þess eins að sjá stöðuna breytast úr 2:3 í­ 4:3 á 88. og 90. mí­nútu.

– Svo tapast báðir leikirnir í­ þriðjudagsboltanum í­ KR-heimilinu…