Tjörnin í 102-Reykjavík

Verðlaunatillagan um byggð í­ Vatnsmýrinni er ekki ósnotur, amk. á pappí­rnum. Ekki átta ég mig þó á því­ hvernig þessi heljarstóra tjörn í­ nýja hverfinu er hugsuð ef búið verður að ræsa fram allt mýrlendið. Nú er ég ekki lí­ffræðingur – en ef svona tjörn á ekki bara að vera lí­fvana pollur hlýtur að þurfa allnokkurt landsvæði til að láta henni til ferskvatn og skapa uppvaxtarskilyrði fyrir smádýralí­f? Eða hvað?

Er ekki rétt skilið hjá mér að Tjörnin hljóti að verða saltari með aukinni framræslu og betri holræsakerfum? Á kannski að bæta úr þessu öllu með Gvendarbrunnavatni?