Nú hef ég rekið augun í það allnokkrum sinnum að forráðamenn nemendafélaganna í MR staðhæfa að sigur skólans í Gettu betur, Morfís og á MR-VÁ daginn sé einstakt afrek.
Eftir því sem ég kemst næst gerðist þetta hins vegar líka árið 1988. Þetta er vissulega vel af sér vikið – en óþarfi að stæra sig af því að þetta sé í fyrsta sinn.