Á ár fagna Knattspyrnufélögin Fram og Víkingur bæði 100 ára afmæli. Ekki er fyllilega ljóst hver stofndagur þessara félaga var – frekar en nokkurra annarra af elstu íþróttafélögum landsins. Hins vegar er óralöng hefð fyrir því að miða stofndag Fram við 1. maí og Víkingar hafa viljað telja sig rúmlega viku eldri.
Nú hafa Víkingar hins vegar ákveðið að halda afmælisfögnuð sinn á 1. maí. Ég hef orðið var við að sumum Frömurum finnst þetta sérkennileg ráðstöfun – að ráðast svo augljóslega inn á afmælisdag annars félags. Það er ekki laust við að nokkurs pirrings gæti hjá stöku manni vegna þessa.
Sjálfum finnst mér þetta rökrétt. Víkingur var jú stofnaður af strákum sem fengu ekki að vera með í Fram, af því að þeir voru of litlir. Það er því augljós söguleg vísun fólgin í því að þeir reyni á ný – hundrað árum síðar – að fá að vera með í partýinu hjá okkur…