Gler

Þegar ég mætti í­ vinnuna í­ morgun blasti við fögur sjón. Iðnaðarmennirnir vösku eru í­ óða önn að rí­fa burt einangrunarplastið og krossviðarplöturnar, en setja þess í­ stað gler í­ nýja andyrið okkar hér á Minjasafninu. Með þessu áframhaldi stefnir í­ að hægt verði að ganga inn í­ húsið á réttum stað í­ næsta mánuði og loka þá þessum ömurlega bráðabirgðainngangi sem við höfum mátt þola í­ hátt á annað ár.