Bókin á náttborðinu er saga Ríkisútvarpsins eftir Gunnar Stefánsson. Fín bók sem ég hef lesið í köflum en aldrei í heild sinni.
Þar var m.a. skrifað um fyrsta útsendingardaginn – þar sem voru flutt nokkur ávörp. Oft hefur maður heyrt spilað ávarp Helga Hjörvar, en í bókinni kemur fram að sú upptaka er miklu yngri. Helgi hafði geymt ræðuna og las hana inn á band í tilefni af e-u afmæli útvarpsins mun síðar.
Hvað ætli elstu hljóðupptökur RÚV séu gamlar?