Rokkað með allsherjargoðanum…
Aldrei fór það svo að næði ekki að sjá færeysku súpergrúppuna Tý á tónleikum. Á gær frétti ég af þeim að spila á blóti hjá ásatrúarmönnum (þeir Týsarar munu víst allir vera miklir áhugamenn um heiðni) og að sjálfsögðu varð úr að mæta á konsertinn. Tónleikarnir voru haldnir í „hofi“ ísatrúarfélagsins við Grandagarð – rétt við hliðina á Kaffivagninum, en þar eru heiðingjarnir að koma sér upp stórskemmtilegum sal í gömlu iðnaðarhúsnæði.
Það voru tvö upphitunarbönd áður en Týr steig á stokk. Annars vegar þungarokkhljómsveitin Dust, en þeir rokkuðu af kappi frekar en forsjá. Hins vegar voru það gríslingarnir í Búdrýgindum. Ég var spenntur að sjá Búdrýgindin loksins á tónleikum og varð ekki fyrir vonbrigðum. Börnin voru ofursvöl! – Þessir gagnfræðaskólastrákar eru fínir að spila og söngvarinn er mikill töffari – þótt hann geti lítið sungið. Þá er ég ekki fjarri því að grísirnir hafi komist í bjórinn hjá Færeyingunum og þess vegna verið svona fjörugir.
Nú var ég aldrei neinn þungarokksaðdáandi í gaggó – þekkti í mesta lagi nokkra Guns´n´Roses-menn. En mikið djöfull voru Týsararnir flottir! Þeir gerðu reyndar þau mistök að bíða alltof lengi með „Orminn langa“, því að salurinn fór ekki út á gólfið að dansa fyrr en það lag byrjaði. Sjálfum finnst mér þó „Ólafur riddararós“ miklu skemmtilegra lag.
Það var fínt að komast loksins á samkomu hjá ásatrúarmönnum – þótt vissulega hafi hún ekki verið dæmigerð. ísatrúarmenn virðast upp til hópa vera skemmtilegt og leitandi fólk. Það væri sennilega margt vitlausara en að skrá sig í ísatrúarfélagið. A.m.k. er skömminni skárra að trúfélagagjaldið renni til hóps sem slær upp góðum rokktónleikum en að þetta renni allt í gæluverkefnasjóð Páls Skúlasonar í Háskólanum.
ísatrúarmenn rokka!