Á laugardaginn verður Gay Pride-gangan í miðborg Reykjavíkur. Fyrstu skiptin sem hún var haldin, reyndu menn að nota heitið hinsegin ganga, en hafa líklega alveg gefist upp fyrir enskunni.
Ég ætla að ganga á laugardaginn, en reyndar ekki í niður Laugaveginn heldur til austurs. Úr því að það er ekki hinsegin ganga, þá hlýtur það að teljast þesskonar ganga. Allir velkomnir:
Fræðsluganga um Elliðaárdal og upp að Gvenndarbrunnum
Laugardaginn 9. ágúst kl 10:00 efnir Orkuveita Reykjavíkur til fræðslugöngu frá Minjasafninu í Elliðaárdal, upp dalinn að Gvendarbrunnum. Meðal annars verður hugað að ánni, örnefnum, jarðfræði, gróðri og dýralífi.
Fjölmargir fræðimenn koma til leiðsagnar. Gengnir verða um 12 km en boðið verður upp á akstur til baka um kl 16:00. Þátttakendur þurfa ekki að koma nestaðir.