Tekjurnar

DV birtir í­ dag tekjur nokkurra bloggara – þar á meðal mí­n.

Mér er stórum létt, enda frekar spældur yfir að hafa dottið út úr tekjublaði Mannlí­fs milli ára.

íhugamenn um tekjuþróun í­ bloggheimum gætu hafa tekið eftir því­ að tekjurnar hafa lækkað allverulega milli ára. Skýringin er sú að ég kenndi miklu minna í­ Háskólanum á árinu 2007 en 2006 – var í­ færri launuðum aukaverkefnum og tók mér nokkurra mánaða launalaust leyfi í­ lok sí­ðasta árs.

Það er því­ engin ástæða til að senda út afkomuviðvörun strax.