Dapurlegt

Þegar sjálfstæði Kosovo var viðurkennt á dögunum, spáði ég því­ á þessum vettvangi að tí­ðinda yrði fljótlega að vænta í­ Suður-Ossetí­u. Þar virðist nú hafin styrjöld.

Reyndar hef ég ekki séð nokkur skynsamleg rök færð fyrir því­ hvers vegna Suður-Ossetar ættu að eiga minni rétt á sjálfstæðu rí­ki en Kosovo-Albanir. Raunar virðist þeirra málstaður rökréttari ef eitthvað er.