ísafjörður var fínn. Reyndar sá ég minnst af bænum, var megnið af tímanum á safnmannafundinum og -partýinu.Sagði hverjum sem heyra vildi að ég væri ættaður að vestan, enda tók langamma á móti 2.000 börnum þarna að talið er.Þegar dagskránni lauk á föstudaginn veðjuðu flestir í hópnum á innanlandsflugið. Það reyndust mistök og sá hluti safnmanna fékk aukanótt fyrir vestan.Ég treysti ekki veðrinu og þáði á síðustu stundu boð um bílfar í bæinn, með Ragnheiði Erlu Bjarnadóttur. Það er ekki amalegt að fá slíkan leiðsögumann. Landafræðikunnátta Ragnheiðar Erlu er með ólíkindum og fáir slá henni við í þekkingu á kirkjum landsins.Â