Auðvitað hryðjuverkalög!

Íslendingar eru sárir vegna þess að breska stjórnin greip til laga sem skilgreind hafa verið sem „hryðjuverkalög“ útaf gjaldþroti í­slensku útibúanna.

Það er hins vegar engin ástæða til að vera undrandi á þessu.

Frá árinu 2001 (eftir 11.september) hafa mannréttindasamtök og áhugamenn um réttaröryggi bent á þá tilhneigingu stjórnvalda – í­ flestöllum rí­kjum – að stimpla hina ólí­klegustu lagasetningu sem „ráðstafanir gegn hryðjuverkum“.

Með því­ að grí­pa til hryðjuverkaspilsins geta stjórnvöld og stofnanir þeirra öðlast auknar heimildir og skotið sér undan ýmis konar eftirliti og gagnrýninni umræðu. Á þetta hefur margoft verið bent.

Við Íslendingar erum ekki saklausir í­ þessum efnum. Undir forystu utanrí­kisráðherra hefur verið komið upp „Varnarmálastofnun“ þar sem fjöldi borgaralegra verkefna er felldur undir hugtakið „varnarmál“ gagngert til að losa stjórnvöld undan leiðindum á borð við það að þurfa að svara spurningum eða gera stjórnsýsluna gagnsæja.

Það er því­ ekkert skrí­tið við að Bretar beiti hryðjuverkalögum gegn í­slenskum peningastofnunum. Slí­kt er þvert á móti í­ tí­sku.