Urr! Stóri leikurinn, Luton : Bournemouth, var blásinn af eftir fimm mínútur vegna snjóbyls.
Hvílíkt antíklímax!
Þá er ekki annað að gera en að fylgjast með úrslitum annarra leikja. Þau virðast svo sem ætla að verða neitt til að hrópa húrra fyrir.
Stuðningsmenn Bournemouth mega vera svekktir. Á annað sinn á þremur árum neyðumst við til að fresta leik gegn þeim eftir að allir eru mættir. Ætli þetta sé ekki tveggja tíma ferð hvora leið?