Páll Magnússon stefnir á formennsku í Framsóknarflokknum. Kunnugir segja að hann eigi séns.
Við hverju getum við búist af flokksformanninum Páli? Jú – ætli þingferill hans gefi ekki bestu vísbendingarnar. Páll hefur jú ítrekað komið inn á þing sem varamaður og flutt þar mál.
Ef horft er til þessara mála – og þá einkum þeirra sem Páll hefur verið fyrsti flutningsmaður að, kemur í ljós að hann er sérstakur áhugamaður um byggingu þjóðarleikvanga.
Jafnframt vill hann að ríkið niðurgreiði gleraugu barna.
Og að virðisaukaskattur á barnaföt verði lækkaður.
…þar með er það eiginlega upptalið.
+ + +
Höskuldur Þórhallsson hefur á hinn bóginn verið fyrsti flutningsmaður tveggja mála á sínum þingferli. Annars vegar um endurgreiðslu olíu- og kílómetragjalds fyrir flutningabílstjóra. Hins vegar um skattaívilnanir vegna rannsóknar- og þróunarverkefna.
Athyglisvert.