Óskaplega þarf lítið til að gleðja mann í seinni tíð.
Luton vann skítalið Barnet á heimavelli, 3:1 – og ég er búinn að vera glaður eins og barn í allan dag.
Núna erum við komnir í mínus sjö stig (byrjuðum með mínus þrjátíu).
Erum tíu stigum á eftir Bournemouth (sem byrjaði með sautján stig í mínus).
Erum sautján stigum á eftir Grimsby.
Líka sautján stigum á eftir Rotherham (sem byrjaði með sautján stig í mínus).
Tuttugu og einu stigi á eftir Barnet.
Og tuttugu og þremur stigum á eftir Chester.
Fjörutíu prósent af mótinu búin. Það þýðir að við erum enn aðeins undir settu marki – en þó ekki mikið.
Næst er reyndar fjári erfiður leikur, Wycombe á útivelli – en Wycombe var fyrir daginn í dag eina taplausa liðið í deildarkeppninni.