Fyrir ári síðan gáfum við Ólínu í jólagjöf áskrift að barnabókaklúbbi Eddu. ískrifendur fá senda bók á mánaðarfresti, yfirleitt glænýja.
Fyrstu mánuðina vorum við hæstánægð. Þarna komu tvær Barbapabbabækur, ný íslensk saga um Lubba lunda o.s.frv. Ætli það hafi verið nema ein bók fyrstu 5-6 mánuðina sem okkur þótti lítið varið í.
Skyndilega breyttist þetta. Á fimm mánaða tímabili fengum við fjórar bækur sem ekki náðu máli. Tvær bækur um Rasmus klump (sem er ennþá skrifaður á sama hrognamálinu og í gamla daga) og tvær flettispjaldabækur um Snillingana (Little Einstein’s frá Disney). Á ljós kom að Edda hafði sameinað barnabókaklúbbinn sinn og Disney-klúbbinn.
Um daginn sögðum við upp áskriftinni. Nóg safnast fyrir að drasli heima hjá manni þó að þetta bætist ekki við. Á staðinn ætlum við að reyna að halda okkur við að fara í bókabúð mánaðarlega og kaupa í hvert skipti almennilega barnabók. Af nógu slíku er að taka.
En passið ykkur á Eddu-klúbbnum.